Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Ræstitæknir

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum ræstitækni til starfa. Um er að ræða 100% starf við ræstingar og umsjón með ýmsum daglegum verkefnum sem stuðla að snyrtilegu og notalegu starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk.

Skólinn er staðsettur að Hjallavegi 2 í Hljómahöll, þar sem einnig eru Rokksafn Íslands og Bókasafn Reykjanesbæjar. Ræstingarsvæðið nær yfir húsnæði tónlistarskólans, hluta af rýmum bókasafnsins sem áður tilheyrðu skólanum og sameiginleg rými á efri hæð.

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er öflugur vinnustaður með um 50 starfsmenn þar sem ríkir góður starfsandi og fjölbreytt skólastarf.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að starfsfólk endurspegli þau gildi í störfum sínum.

Viðkomandi fær góða tilsögn í þrifum og umhirðu hljóðfæra og annars viðkvæms búnaðar skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg þrif á kennslustofum, skrifstofum, vinnuaðstöðu kennara, göngum og kaffistofu starfsfólks. 
  • Dagleg þrif á salernum. 
  • Laga til borð og stóla í kennslustofum. 
  • Umsjón með kaffistofu starfsfólks, þar á meðal síðdegiskaffi. 
  • Umsjón með innkaupum á hreinlætisvörum og vörum fyrir kaffistofu. 
  • Vökva og hirða um blóm í húsnæði skólans. 
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af ræstingarstörfum er skilyrði. 
  • Námskeið eða menntun í ræstitækni er kostur. 
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli. 
  • Enskukunnátta er æskileg. 
  • Þjónustulund, jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni. 
  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og áreiðanleiki. 
  • Stundvísi er mikilvæg
Hlunnindi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań8. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe