

Tæknimaður í notendaþjónustu
Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?
Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustulunduðum aðila í starf tæknimanns í notendaþjónustu (IT support technician) hjá Inchcape á Íslandi. Starfið tilheyrir Þjónustu- og upplýsingatæknisviði og felst í að veita starfsfólki fyrirtækisins fyrsta flokks tæknilega þjónustu og stuðning með það að markmiði að tryggja öruggt, skilvirkt og samfellt rekstrarumhverfi upplýsingatæknikerfa.
Starfið felur í sér daglega notendaþjónustu, úrræðaleit, uppsetningu og viðhald á tækjabúnaði og hugbúnaði ásamt þátttöku í umbótaverkefnum og þróun upplýsingatækniþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fullt starf og tæknimaður í notendaþjónustu þarf að vera öruggur í samskiptum, skipulagður og lausnamiðaður.
- Tæknileg þjónusta við notendur vegna upplýsingakerfa, hugbúnaðar og vélbúnaðar
- Móttaka, greining og úrlausn beiðna og atvika í gegnum þjónustuborð (Service Desk)
- Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum, farsímum og öðrum búnaði
- Stofnun, breytingar og lokun aðganga samkvæmt verklagi
- Aðstoð og fræðsla til notenda um upplýsingatæknikerfi og ferla
- Eftirfylgni með því að þjónustubeiðnir séu afgreiddar innan skilgreindra þjónustuviðmiða
- Þátttaka í innleiðingu nýrra kerfa, tækni og verkefna
- Viðhald skjölunar, verklagsreglna og þekkingargrunns upplýsingatæknideildar
- Stuðningur við upplýsingaöryggi með því að fylgja stefnum og verklagi fyrirtækisins
- Þátttaka í stöðugum umbótum á þjónustuferlum og notendaupplifun
- Menntun á sviði upplýsingatækni eða sambærileg reynsla
- Reynsla af notendaþjónustu er skilyrði
- Góð þekking á Microsoft 365 umhverfi og Windows stýrikerfum
- Microsoft-vottun er kostur
- Þekking á aðgangsstýringum og almennri kerfisumsjón er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni til að eiga fagleg samskipti við notendur á öllum sviðum fyrirtækisins
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að leysa vandamál með skipulögðum hætti
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðri samvinnuhæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Gild ökuréttindi
islandzki
Angielski










