

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport er leiðandi flutnings- og tollmiðlari á íslenska flutningamarkaðinum. Jónar hafa á að skipa reynslumiklu starfsfólki með ríka þjónustulund og frumkvæði í starfi. Gildi Jóna eru Áreiðanleiki – Frumkvæði – Þekking og Léttleiki. Við bjóðum upp á fjölbreytt starf í krefjandi umhverfi. Starfsemi Jóna samanstendur af traustum og stórum viðskiptavinahópi, öflugum samstarfsaðilum á íslandi og erlendis og framúrskarandi þjónustulund starfsmanna með mikla samskiptahæfni
Jónar Transport leita að áhugasömum, jákvæðum og metnaðarfullum starfsmanni í starf afgreiðslu- og þjónustufulltrúa í tolladeild.
Helstu verkefni:
- Tollskjalagerð í inn- og útflutningi og frágangur á vörureikningum
- Útgáfa flutningstengdra skírteina
- Innheimta flutningsgjalda og annarra aðflutningsgjalda
- Samskipti við tollayfirvöld, farmlytjendur, umboðsmenn innanlands og erlendis, skrifstofur okkar erlendis og erlenda samstarfsaðila
- Þjónusta og aðstoð við viðskiptavini
Hæfnikröfur:
- Stúdentspróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af tollafgreiðslu og þekking á tollalögum er kostur
- Gott vald á ensku og íslensku í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á Navision er kostur
- Heiðarleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ferilskrá ásamt greinargóðu kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar veitir Egill Örn Einarsson, deildarstjóri innanlandsdeildar í [email protected]
islandzki
Angielski










