Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri

Þjónustufulltrúi starfar í þjónustuveri þar sem hann sinnir móttökustörfum fyrir svið Kópavogs. Megin verkefni felast í móttöku og afgreiðslu, skráningu gagna, skjalavörslu, útsendingu bréfa og símavörslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla, móttaka og símavarsla þjónustuvers.
  • Leiðbeiningar og aðstoð við einstaklinga vegna þjónustu Kópavogsbæjar og notkun rafrænna lausna.
  • Umsýsla og afgreiðsla á búnaði til starfsfólks, svo sem tölvum, símum og skrifstofuvörum.
  • Aðstoð við notendur vegna sérúrræða á mennta- og velferðarsviði.
  • Móttaka umsókna og erinda, skráning mála og fylgigagna í One skjalakerfi.
  • Skjalavinnsla, frágangur og varðveisla gagna í samræmi við skjalareglur og kröfur Héraðsskjalasafns.
  • Undirbúningur funda, frágangur fundargerða og gerð svarbréfa.
  • Skráning og umsýsla upplýsinga í upplýsingatæknikerfum bæjarins.
  • Uppfærsla og viðhald upplýsinga á vef bæjarins og í þekkingarkerfi þjónustuvers.
  • Virk þátttaka í þróun þjónustu, umbótaverkefnum og aukinni sjálfvirknivæðingu.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærilegt menntun
  • Að vera í námi á sviði félagsfræða telst kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta, þar á meðal í MS Office
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð íslensku- og ensku kunnátta áskilin. Þekking á öðrum tungumálum getur verið kostur
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 klukkustunda vinnuvika. 

Utworzono ofertę pracy28. August 2026
Termin nadsyłania podań20. September 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe