
Múlaberg Bistro & Bar
Múlaberg Bistro & Bar er veitingastaður og kokteilbar í hjarta Akureyrar, staðsettur á Hótel Kea við kirkjutröppurnar. Fáguð upplifun í líflegu andrúmslofti þar sem matur og drykkur mætast á einstakan hátt.
Frá vönduðum steikum og fiski til smárétta, vandaðra kokteila og áhugaverðra vína í hlýlegu og notalegu umhverfi. Múlaberg hentar bæði fyrir sérstök tilefni, rómantíska kvöldverði og þá sem vilja einfaldlega njóta góðs matar og drykkjar í góðri stemmningu.
Terían er hlýlegur og smekklegur veitingastaður á einu flottasta horni Akureyrar – á neðstu hæð Hótel Kea, við rómaðar kirkjutröppurnar. Við leggjum áherslu á létta og heiðarlega matargerð þar sem fersk hráefni fá að njóta sín, með innblæstri frá franskri og ítalskri matarmenningu.
Stemningin er afslöppuð en þjónustan persónuleg og andrúmsloftið hlýlegt – fullkomið fyrir morgunverð, brunch, kvöldmat með góðum gestum eða glas á meðan sólin sest yfir gömlu miðbæjargötuna.

Þjónar í fullt starf/hlutastarf
Við erum að leita að fleiri snillingum í þjónateymi Múlabergs og Teríunnar. Ef þú hefur ástríðu fyrir að veita framúrskarandi þjónustu og vilt hafa gaman í vinnunni þá hvetjum við þig til þess að senda okkur umsókn.
Reynsla er æskileg en ekki skilyrði.
Starfið felur í sér
- Þjónusta í veitingasal Teríunnar & Múlabergs
- Þjónusta á viðburðum í veislusölum Múlabergs
- Uppsetning á veitingasölum
- Upplýsingagjöf til gesta um þjónustu og mat
- Samvinna með öllum deildum
Í boði er hlutastarf og fullt starf
Múlaberg bistro & bar og Terían Brasserie eru veitingastaðir í hjarta bæjarins á Hótel KEA Akureyri.
Við bjóðum uppá fjölbreyttan og hressan hóp vinnufélaga og erum við með hátt hlutfall fagmanna og nema í veitingagreinum.
Utworzono ofertę pracy6. September 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Aðstoðarmanneskja í mötuneyti
Embla Medical | Össur

Þjónn | Waiter
Íslandshótel

Vaktstjóri á Spa Restaurant
Bláa Lónið

Viltu verða djúsari? (Hlutastarf Miðvikudagshádegi & Helgar)
Joe & the juice

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

kokkur,morgunmatur,þrif,þjónusta við mat
árnes ferðaþjónusta ehf

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Þjónar
Tapas barinn

Barþjónar í hlutastarf
Tapas barinn

Fullt starf á Ginger veitingastað
Ginger

Kvöld og helgarvinna / Evening / weekend
Ginger

Ert þú þjónninn sem við leitum af?
Blik Bistró