Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Tæknimaður á Akureyri

Langar þig að vinna í einu þekktasta brugghúsi landsins?

Víking Brugghús á Akureyri leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að hafa umsjón með og leiða viðhald á vélum og tæknibúnaði framleiðslunnar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem þú kemur að uppsetningu, viðhaldi og endurnýjun framleiðslubúnaðar sem gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi brugghússins.

Helstu verkefni:

  • Uppsetning, viðhald og eftirlit með vélum og tæknibúnaði brugghússins
  • Ábyrgð á viðhaldskerfi fyrirtækisins
  • Endurnýjun á framleiðslubúnaði
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Innkaup og utanumhald varahluta
  • Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins

Við leitum að einstaklingi með:

  • Menntun og reynslu sem nýtist í starfi
  • Þjónustulund og góða samskiptahæfni
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Metnað og lausnamiðaða hugsun


Um Víking Brugghús

Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af Coca-Cola á Íslandi þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í s. 511 1225.

Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań12. October 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Furuvellir 17
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.TechnologPathCreated with Sketch.MechanikaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe