

Sumarstörf í Básum
Útivist leitar að einstaklega jákvæðu og öflugu fólki til starfa í Básum i Þórsmörk sumarið 2026.
Um er að ræða tvö störf við skála- og tjaldstæðavörslu. Bæði er leitað að starfsmanni frá júni út ágúst en einnig að aðila til styttri tíma yfir hásumarið í júlí.
Skála- og tjaldstæðavarsla
Helstu verkefni:
· Móttaka og upplýsingagjöf
· Þrif á skálum og tjaldsvæði
· Létt viðhald
· Vörusala
· Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
· Hlýlegt viðmót
· Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
· Góð enskukunnátta
· Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og metnaður fyrir starfi
· Þekking á Bása svæðinu er kostur
· Reynsla af útivist og náttúru, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir
· Reynsla af þjónustustörfum kostur
islandzki
Angielski










