Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf - Fullt starf í Kópavogslaug

Laus eru til umsóknar sumarstörf í Kópavogslaug

Kópavogslaug er staðsett í vesturbæ Kópavogs stutt frá Hamraborginni og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni eru á fjórða tug starfsmanna, 7 til 10 starfsmenn á hverri vakt.

Laugin er opin virka daga frá kl. 06:30 til 22:00 og um helgar frá 08.00 til 20.00. Vinnan hefst 15 mínútum fyrir opnun og lýkur 30 mínútum eftir lokun. Unnið er á tveimur vöktum virka daga en einni vakt um helgar.

Sundlaug Kópavogs auglýsir eftir sumarstarfsfólki til starfa bæði í fullt starf sem og helgarstarf.

Allt starfsfólk fær kennslu í skyndihjálp, björgun og fleiru.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
  • Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
  • Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsfólk verður að vera orðið 20 ára.
  • Allgóð sundkunnátta er áskilin, því laugarverðir verða að standast sundpróf, sem er svipað og 10. sundstig grunnskóla.
  • Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
  • Góð samstarfshæfni og þjónustulund.
  • Hreint sakavottorð.
  • Kópavogslaug er reyklaus vinnustaður.
  • Góð íslenskukunnátta.
Utworzono ofertę pracy16. January 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RecepcjaPathCreated with Sketch.NiepalącyPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.PływaniePathCreated with Sketch.Nastawienie do klientaPathCreated with Sketch.Sprzątanie
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe