Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sumarafleysing - Ljósmóðir í mæðravernd - Heilsugæsla HVE Borgarnesi

HVE óskar eftir að ráða inn í sumarafleysingu ljósmóður í mæðravernd og skimun fyrir leghálskrabbameini á heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Tímasetningi er eftir samkomulagi við yfirhjúkrunarfræðing en afleysingin er til allt að 16 vikna. Starfshlutfall er 20% eða eftir nánari samkomulagi.

Hægt er að starfa samhliða á fæðinga - og kvennadeild HVE Akranesi en störf á 2 deildum teljast inn í vaktahvata sem er kostur.

Möguleiki er á að fleiri en einn starfsmaður deili með sér verkefninu

Helstu verkefni og ábyrgð

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.

Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisis nr. 70/1996.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsleyfi sem ljósmóðir

  • Reynsla sem ljósmóðir í mæðravernd og á heilsugæslustöð er kostur

  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Utworzono ofertę pracy5. May 2026
Termin nadsyłania podań11. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgarbraut 65, 310 Borgarnes
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe