
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Sumarafleysing í heimaþjónustu í Garðabæ
Dagar leita að jákvæðu og ábyrgu starfsfólki í sumarafleysingar í innlitum hjá eldra fólki í Garðabæ. Um er að ræða tímabilið 22. júní – 5. ágúst, unnið er alla virka daga frá kl. 8-14.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnin felast í því að heimsækja aldraða einstaklinga og aðstoða þá við daglegar þarfir ásamt því að sinna léttum heimilisverkum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að tala íslensku, hafa hreint sakavottorð og vera á eigin bíl. Reynsla af umönnunarstörfum er kostur.
Utworzono ofertę pracy5. May 2026
Termin nadsyłania podań22. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Lyngás 17, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
Bez kryminalnej przeszłościPozytywne nastawieniePrawo jazdy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (4)
Podobne oferty pracy (12)

Kjörbúðin Keflavík verslunarstarf
Kjörbúðin

Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Landspítali

Sumarstarf í Íþróttamiðstöð: sundlaugarverðir
Dalvíkurbyggð

Sumarstörf/Framtíðarstörf Akureyri
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels

Sólar ehf. auglýsir ræstingastörf á Grundartangi / Cleaning jobs in Grundartangi
Sólar ehf

Sumarafleysing - staða konu í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Eyjafjarðarsveit

Ræstingar
Alva Hotels

Car Wash – Avis car rental, Akureyri
Avis og Budget

Starfsmaður í heimaþjónustu á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsfólk í heimaþjónustu
Borgarbyggð

Viltu vinna sem aðstoðarkona fyrir ungmenni?
K8

Starfsfólk í ræstingu óskast til starfa
Grundarheimilin