
DHL Express Iceland ehf
Alþjóða hraðsendingar og fraktsendingar um allan heim í lofti, á sjó, með bílum og lestum. Vöruhúsalausnir, allt frá pökkun til geymslu, póstsendingar um allan heim, sem og aðrar sérhæfðar lausnir á sviði vörustjórnunar - DHL færir þér úrval flutningsleiða og yfirburði heim að dyrum.
Að starfa fyrir DHL þýðir að taka ábyrgð, sigrast á ögrandi áskorunum og vaxa og þroskast sem hluti af fjölbreyttu alþjóðlegu starfsliði.
Nýttu þér margskonar spennandi möguleika á starfsframa til að skila góðum árangri með okkur og vera hluti af stærsta flutningafyrirtæki í heimi.
DHL býður fjölbreytt störf með mikla möguleika á öllum starfsþrepum í öllum heimshlutum. Sem starfsmaður hjá okkur færðu tækifæri til að móta með góðri vinnu í góðum hópi þína eigin framtíð bæði í starfi og leik. Saman myndum við fyrirtæki sem við getum verið virkilega stolt af.

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf óskar eftir að ráða starfsfólk í vöruhús fyrirtækisins á starfsstöð sinni að Fálkavelli 17, 235 Keflavíkurflugvelli.
Leitað er að kraftmiklum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi með ríka þjónustulund sem er reiðubúnir að takast á við krefjandi verkefni í fjölbreyttu alþjóðlegu starfsumhverfi.
Vinnutími frá apríl til október sama árs er frá 08:00-12:00 alla virka daga.
Vinnutími frá október til apríl næsta árs er frá 08:30-12:30 alla virka daga.
Óskandi að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afhleðsla og hleðsla vörusendinga.
- Aðstoð við undirbúning vörusendinga fyrir afhendingarferli
- Frágangur og uppsetning í vöruhúsi
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hreint sakavottorð skilyrði
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur, skv. stefnu fyrirtækisins
- Árlegur íþróttastyrkur
- Tækifæri til þróunar í starfi, hérlendis sem og erlendis
Utworzono ofertę pracy29. September 2026
Termin nadsyłania podań11. October 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Fálkavöllur 17, 235 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
Bez kryminalnej przeszłościSprawność fizycznaPunktualność
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Vöruhús / lager
Icetransport

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Kjörbúðin Akureyri - hlutastarf
Kjörbúðin

Dreifingarmiðstöð - lagerstarfsmaður
Vínbúðin

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir