
Ölgerðin
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að hluta fólginn í mannauði þeirra.
Við drögum að og höldum hæfasta starfsfólkinu með hvetjandi fyrirtækjamenningu án fordóma og með áherslu á jafna möguleika. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af skapandi og framsæknu fólki. Sjálfbærni er samofin menningu, við eyðum allri sóun og nýtum okkur stafræna tækni til umbóta sem skapar okkur samkeppnisforskot.
Við sinnum hverjum viðskiptavini og birgja eins og hann væri okkar eini og setjum aðeins þau vörumerki á markað sem eru, eða hafa möguleika á að vera, fremst í sínum flokki.
Við erum keppnis, gerum hlutina fyrr og betur en aðrir og leggjum metnað í að skapa eftirsóttasta vinnustað landsins.
Markmið Ölgerðarinnar er að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Starfsmaður í þjónustudeild
Við leitum að duglegri og jákvæðri manneskju til að sinna hreinsunum, fyrirbyggjandi viðhaldi, ásamt minniháttar viðgerðum á tækjum Ölgerðarinnar.
Vinnutími er jafnan frá 8-16 en getur verið lengri eftir dögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hreinsanir, fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðir á tækjum Ölgerðarinnar hjá viðskiptavinum og í Þjónustudeild
- Önnur tilfallandi störf sem koma upp í Þjónustudeild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, gott skipulag og öguð sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af minni háttar viðgerðum mikill kostur
- Útsjónarsemi, stundvísi og góð framkoma
- Góða samskiptahæfni, samviskusemi og jákvæðni
- Góð íslensku og ensku kunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Utworzono ofertę pracy2. September 2026
Termin nadsyłania podań1. October 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (9)

Tæknimaður
STOÐ

Standsetningar nýrra tækja
BRP - Ellingsen

Klæðskeri / kjólameistari
Borgarleikhúsið

Multivac Tæknimaður
Multivac ehf

Skoðunarmanneskja á björgunarbúnaði
Viking Life-Saving Equipment Iceland ehf.

Tæknistarf á Reykjanesi
Securitas

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf