Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði

Erum við að leita að þér?

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki í síðdegis barnastarf með 6-9 ára börnum í frístund. Kjörið með námi og alltaf frí um helgar :)

Í boði er 40-50% starfshlutfall með vinnutíma á bilinu 13:00-16:30 alla virka daga. Einnig er möguleiki á að vera nokkra daga í viku í lægra starfshlutfalli/tímavinnu með skóla.

Um er að ræða stöður út þetta skólaár með möguleika á fastráðningu.

Við leitum að jákvæðu og lífsglöðu starfsfólki sem er tilbúið að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starf við skólann.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa eftir stefnu skólans, samkvæmt aðalnámskrá, skólanámskrá og kynjanámskrá Hjallastefnunnar
  • Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og þekking á starfi með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Jákvæðni
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði á vinnutíma
Utworzono ofertę pracy22. September 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Hjallabraut 55, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe