Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli

Starfsfólk óskast í Leirvogstunguskóla

Leirvogstunguskóli leitar að leikskólakennurum og/eða starfsfólki leikskóla til starfa.

Það eru forréttindi að vinna í leikskóla, viltu koma og vera með ?

Í Leirvogstunguskóla eru um 112 börn á 6 deildum þar sem leikurinn er í öndvegi. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin er höfð að leiðarljósi. Unnið er markvisst eftir kennsluaðferðinni Leikur að læra sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gegnum söngva, leiki og hreyfingu.

Leitað er eftir kennurum, uppeldismenntuðu fólki og/eða öðru fólki með reynslu til starfa.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Auk gilda Mosfellsbæjar hefur starfsfólk Leirvogstunguskóla sameinast um sitt eigið gildi sem er seigla.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Virðing og áhugi fyrir börnum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og lausnarmiðað viðhorf
  • Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði 
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum í leikskólum Mosfellsbæjar
  • Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári.
Utworzono ofertę pracy22. September 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Laxatunga 70, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe