Sóltún hjúkrunarheimili
Sóltún hjúkrunarheimili
Sóltún hjúkrunarheimili

Sóltún hjúkrunarheimili - starfsmaður í félagsstarf

Sóltún hjúkrunarheimili leitar eftir starfsmanni í félagsstarf íbúa.

Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvætt viðmót, sýnir frumkvæði, hugmyndaauðgi, metnað til góðra verka og framúrskarandi samskiptahæfni. Með einlægan áhuga á samskiptum og þjónustu við eldra fólk. Góð íslenskukunnátta og hreint sakavottorð er skilyrði.

Sjálfstæð vinnubrögð og þátttaka í teymisvinnu eru mikilvægir eiginleikar.

Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkomulagsatriði og starfið getur mögulega hentað með námi. Staðan er laus frá og með 1.ágúst og um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgja eftir og leiða dagskrá í einstaklings-og hópastarfi íbúa Sóltúns 
  • Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa Sóltúns í félagsstarfi  
  • Halda utan um viðburði og önnur verkefni sem falla til 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur t.d. þroskaþjálfun, tómstundafræði, félagsliði. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar 
  • Kostur, en ekki skilyrði ef áhugi er fyrir léttu handverki 
Fríðindi í starfi

Niðurgreiddur hádegismatur, íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fatapeningur 

Utworzono ofertę pracy25. June 2025
Termin nadsyłania podań23. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Oznaczenia