Icelandia
Icelandia
Icelandia

Sölustjóri - sérhópadeild

Icelandia auglýsir eftir öflugum og árangursdrifnum sölustjóra til að leiða sérhópadeildina okkar. Við leitum að tæknilega sterkum einstaklingi með haldgóða reynslu af sölu og skýra getu til að leiða breytingar.

Sölustjóri ber ábyrgð á að leiða öflugt söluteymi, byggja upp sterk alþjóðleg viðskiptasambönd og vinna náið með samstarfsaðilum að því að skapa framúrskarandi upplifanir á Íslandi. Hlutverkið felur einnig í sér að greina, þróa og bæta söluferla, með áherslu á einfaldleika og aukna skilvirkni. Undir deildina heyra vörumerkin Reykjavík Excursions, Icelandic Mountain Guides og Icelandia.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppbygging og þróun viðskipta innan sérhópa- og White Label-deildar Icelandia.
  • Uppbygging og viðhald sterkra tengsla við lykilviðskiptavini og samstarfsaðila.
  • Þróun og umbætur söluferla með markvissri nýtingu tækni, gagna og kerfa.
  • Leiða og styðja við teymi innan sölusviðs Icelandia.
  • Undirbúningur og eftirfylgni tilboða og samninga.
  • Þátttaka í kynningum, sýningum og öðru markaðsstarfi.
  • Greining á markaði, samkeppni og þörfum viðskiptavina.
  • Þverfaglegt samstarf innan fyrirtækisins að þróun lausna og bættri þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu og viðskiptaþróun, einkum innan ferðaþjónustunnar eða á alþjóðlegum markaði.
  • Reynsla af greiningu, hönnun og þróun söluferla, þar á meðal innleiðingu og nýtingu tæknilausna til að auka skilvirkni.
  • Reynsla af stjórnun, breytingastjórnun og uppbyggingu árangursríkra teyma.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð í krefjandi og kraftmiklu umhverfi.
  • Sterk viðskiptaleg hugsun og árangursdrifin vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu söluteymi.
  • Sveigjanleiki í vinnuumhverfi og framúrskarandi starfsandi.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
Utworzono ofertę pracy30. March 2026
Termin nadsyłania podań13. April 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogólne umiejętności technicznePathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.Występy/WykładyPathCreated with Sketch.Projektowanie procesówPathCreated with Sketch.Wdrażanie procesówPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Analiza rynkówPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.SprzedażPathCreated with Sketch.Dział kadrPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Analiza biznesowaPathCreated with Sketch.Relacje biznesowe
Zawody
Tagi zawodowe