

Sölusnillingur óskast í frábært teymi nýrra bíla- sumarstarf
Við hjá Heklu leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi til að starfa með okkur í söludeild nýrra bíla í sumar.
Markmið Heklu er að bjóða ávallt framúrskarandi þjónustu og gegna söluráðgjafar okkar þar lykilhlutverki.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Kynning, ráðgjöf og sala á bílum og aukahlutum
Tilboðsgerð og eftirfylgni
Samskipti við viðskiptavini
Viðhald viðskiptatengsla
Önnur verkefni
Rík þjónustulund og frumkvæði
Framúrskarandi söluhæfileikar
Jákvæðni og góð samskiptafærni
Þekking og áhugi á bílum
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hjá Heklu starfar samhentur hópur fólks. Við bjóðum upp á frábært mötuneyti. Íþróttastyrk ásamt árlegum heilsufarsmælingum. Starfsfólk nýtur afsláttarkjara á vörum og þjónustu fyrirtækisins.













