ILVA ehf
ILVA ehf
ILVA ehf

Söluráðgjafi hjá ILVA Kauptúni

Viltu vinna í lifandi og spennandi umhverfi þar sem hönnun, þjónusta og sala fara saman?

Við leitum að metnaðarfullum og söludrifnum einstaklingi til að ganga til liðs við teymið okkar sem söluráðgjafi hjá ILVA.

Um starfið
Sem söluráðgjafi hjá ILVA ert þú lykilaðili í að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini.

Þú aðstoðar viðskiptavini við að finna réttu lausnirnar fyrir heimilið sitt og vinnur markvisst að því að ná söluárangri.

Um er að ræða fullt starf.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hvetjum við sérstaklega 40 ára og eldri að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
  • Greina þarfir viðskiptavina og mæla með heildarlausnum
  • Vinna markvisst að sölu og ná settum markmiðum
  • Tryggja að verslunin sé snyrtileg, aðlaðandi og vel uppsett
  • Taka þátt í uppsetningu, áfyllingu og daglegum rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Brennandi áhugi á sölu og framúrskarandi þjónustulund
  • Jákvæðni, drífandi og sterk samskiptahæfni
  • Gott auga fyrir hönnun og rými
  • Nýtur þess að vinna með fólki og ná árangri í teymi
  • Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð
  • Snyrtimennska
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
Utworzono ofertę pracy1. April 2026
Termin nadsyłania podań22. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Kauptún 1, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe