Fast Parts ehf.
Fast Parts ehf.

Söluráðgjafi

Fast Parts er ört vaxandi fyrirtæki sem starfar á sviði varahluta, dekkja og rekstrarvara fyrir bíla, vinnuvélar, landbúnaðartæki og aðrar vélar.

Við leitum að öflugum söluráðgjafa í verslun okkar í Hafnarfirði. Starfið felur fyrst og fremst í sér sölu, þjónustu og ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja.

Við leggjum meiri áherslu á rétt viðhorf, drifkraft og vilja til að læra en að þú kunnir allt frá fyrsta degi. Fyrir réttan einstakling eru góð tækifæri til að vaxa í starfi, taka að sér meiri ábyrgð og þróast áfram með fyrirtækinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Móttaka og samskipti við viðskiptavini í verslun, síma, tölvupósti og á miðlum Fast Parts
  • Tilboðsgerð, eftirfylgni og uppbygging viðskiptasambanda
  • Þátttaka í sölu- og markaðsstarfi
  • Ýmis tilfallandi verkefni tengd daglegri starfsemi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og áhugi á sölu
  • Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðhorf
  • Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Gild ökuréttindi
  • Reynsla af sölu og þjónustu
  • Áhugi eða þekking á bílum og tækjum er kostur
Utworzono ofertę pracy28. August 2026
Termin nadsyłania podań20. September 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Trönuhraun 8, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe