Fast Parts ehf.
Fast Parts ehf.

Sölumaður í varahlutaverslun á Akureyri

Fast Parts er ört vaxandi fyrirtæki sem leggur metnað í persónulega þjónustu og ánægju viðskiptavina innan bílaiðnaðarins. Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á að stíga inn í hlutverk sölufulltrúa í varahlutaverslun okkar á Akureyri.

Það sem að við bjóðum upp á:

- Gott og uppbyggjandi umhverfi til að auka og betrumbæta þekkingu á bílum og varahlutum.

- Möguleiki á að efla sölukunnáttu og samskiptahæfileika- Góð laun fyrir rétta aðilann.

Það sem við búumst við af starfsfólki okkar:

- Stundvísi og áreiðanleiki.

- Frumkvæði, jákvæðni og drifkraft til að takast á við mismunandi tilfallandi verkefni með réttu viðhorfi.

- Metnað til að tileinka sér og læra nýja hluti.

- Umsækjandi þarf að hafa góða kunnáttu í íslensku og ensku.

-Umsækjandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu.

Þekking á bílum er ekki nauðsynleg ef tölvuþekking er til staðar, en þekking á bílum er þó æskileg. Fyrri reynsla í bílaiðnaðinum er ekki nauðsynleg, að því tilskildu að þú uppfyllir sett skilyrði okkar. Teymið okkar er alltaf til staðar til að styðja við hvort annað og stuðlar að umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að bæta sig og vinna með styrkleika sína. Ef þú hefur áhuga eða hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband í síma 7878882 eða á [email protected].Við hlökkum til að taka á móti þér í Fast Parts fjölskylduna!

Utworzono ofertę pracy6. June 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Tryggvabraut 24, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia