
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Sölumaður heildsölusviðs
Lífland leitar að öflugum og framsæknum einstaklingi til þess að sinna starfi sölumanns heildsölusviðs. Um er að ræða spennandi starf sem felur í sér sölu og ráðgjöf til viðskiptavina á heildsölu- og matvælavörum. Vinnutíminn er frá 8:00-16:00.
Ef þú brennur fyrir sölu og hefur mikinn áhuga og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rágjöf og sala til viðskiptavina
- Viðhald og öflun nýrra viðskiptavin
- Greining viðskiptatækifæra
- Móttaka pantana
- Undirbúningur og eftirfylgni söluferða
- Þátttaka í gerð markaðs- og söluáætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. bakaramenntun eða á matvælasviði
- Reynsla eða mikill áhugi af sölustörfum
- Söluhæfileikar og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta (Excel)
Utworzono ofertę pracy13. March 2026
Termin nadsyłania podań29. March 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaSamodzielność w pracySprzedaż
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Brennur þú fyrir þjónustu?
Dekkjasalan

Sölustjóri þjálfunar og tæknilausna
Total Tempo ehf.

Söluráðgjafi
Egill Árnason ehf

Reykjavík - Sölufulltrúi, 30 ára og eldri
Papco

Sölufulltrúi í sumar
Myllan

Hefur þú ástríðu fyrir skóm?
S4S - Kaupfélagið

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir
Ferðaland

Viðskiptastjóri
Dekra Innflutningur

Sölustarf í persónu (Face to face)
Takk ehf

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Hefur þú áhuga á fluguveiði?
Veiðiflugur

Sölufulltrúar hjá Símanum
Síminn