Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Skólaliði í Barnaskóla Kársness

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Við óskum eftir jákvæðum og umburðarlyndum skólaliða í Barnaskóla Kársness. Starf skólaliða er þjónustustarf sem felur í sér ræstingu skólahúsnæðis, þvott, aðstoð og frágang í mötuneyti og matsal sem og aðstoð við nemendur í leik og starfi, til dæmis í gangavörslu og frímínútnagæslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ræsting skólahúsnæðis og þvottur
  • Halda rýmum snyrtilegum og hreinum yfir daginn
  • Aðstoðar nemendur innan húss og utan í samstarfi við annað starfsfólk skólans
  • Aðstoð og frágangur í mötuneyti, matsal og kaffistofu skólans, aðstoð við undirbúning máltíða og gæsla í matsal
  • Gangbrautarvarsla, frímínútnagæsla og fylgd með nemendum, s.s. í sund-, íþrótta- og vettvangsferðum þar sem við á
  • Gengur fram með góðu fordæmi og aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem kunna að vera falin af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
  • Ríkuleg þjónustulund
  • Stundvísi og reglusemi
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Utworzono ofertę pracy9. April 2026
Termin nadsyłania podań23. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe