Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Skemmtilegt sumarstarf á Egilsstöðum

Vegna sumarafleysinga er laus 95% staða starfsmanns á heimili fyrir fatlað fólk á Egilsstöðum. Möguleiki er á framtíðar starfi og minna starfshlutfalli.

Um er að ræða vaktavinnu með morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum.

Næsti yfirmaður er forstöðuþroskaþjálfi búsetuþjónustu.

Í búsetuþjónustu er veitt aðstoð inn á heimilum fatlaðs fólks, við allar athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf, persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.

Leitað er að jákvæðum einstaklingi með góða samskiptahæfileika og almenna kunnáttu . Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf sem hentar fólki 18 ára og eldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð og stuðningur til þjónustunotenda til að lifa innihaldsríku lífi og til þátttöku í samfélaginu. Markmiðið er að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þjónustunotenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta.
  • Ökuréttindi eru æskileg.
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur.
  • Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
  • Fæði á vinnutíma.
Utworzono ofertę pracy16. May 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Podstawowe umiejętności
Lokalizacja
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Podstawowe kategorie prawa jazdyPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.ÍslenskukunnáttaPathCreated with Sketch.NiepalącyPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)
Odpowiada
Zawody
Oznaczenia