Seltjörn hjúkrunarheimili
Seltjörn hjúkrunarheimili
Seltjörn hjúkrunarheimili

Deildarstjóri sjúkraþjálfunar á hjúkrunarheimilinu Seltjörn

Deildarstjóri sjúkraþjálfunar óskast

Sjúkraþjálfari óskast á hjúkrunarheimilið Seltjörn Seltjarnarnesi sem deildarstjóri sjúkraþjálfunar. Starfið er laust frá og með 15. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi og starfshlutfall er sveigjanlegt.


Starfið er fjölbreytilegt, krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar, sveigjanleika, og frumkvæðis. Viðkomandi þarf að hafa fullgilt íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari, hafa gott vald á íslensku, reynsla og/eða þekking á RAI mælitæki er kostur sem og reynsla í sjúkraþjálfun aldraðra.


Helstu verkefni og ábyrgð

-Ábyrgð á sjúkraþjálfun heimilismanna

-Meta færni og veita / leggja upp viðeigandi meðferð

-Skráning og skýrslugerð. Notað er sjúkraskrárkerfið Saga

-Þátttaka í teymis- og hópastarfi

-Annast umsýslu hjálpartækja ásamt iðjuþjálfa

-Fræðsla til starfsfólks

-Tekur þátt í fagþróun

Við bjóðum upp á líflegt og skemmtilegt vinnuumhverfi á litlu og notalegu heimili þar sem fjölbreytt þjónusta og breiður hópur skjólstæðinga gerir starfið bæði krefjandi og gefandi. Sjúkraþjálfari vinnur náið með og í samstarfi með íþróttafræðingi heimilisins.


Við leggjum okkur fram um að styðja við jafnvægi milli vinnu og einkalífs, og að álag í starfi sé hæfilegt. Heitur matur í boði í hádeginu.

Nánari upplysingar veitirBryndísi F. Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari, [email protected] s. 864-4605

Utworzono ofertę pracy23. November 2026
Termin nadsyłania podań4. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Safnatröð 1, 170 Seltjarnarnes
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe