

Sjúkraþjálfari á Landspítala Landakoti
Við óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara í okkar góða hóp í sjúkraþjálfun á Landakoti.
Hér er kjörið tækifæri til að dýpka þekkingu og verða hluti af skemmtilegri og öflugri liðsheild. Á Landakoti fer fram sérhæfð og þverfagleg endurhæfing fjölbreytts hóps sjúklinga. Lögð er áhersla á greiningarvinnu, fagþróun, kennslu og þverfaglegt samstarf. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara.
Fríðindi í starfi eru meðal annars sveigjanlegur vinnutími, engin kvöld- eða helgarvinna fyrir utan nokkra rauða daga á ári, aðgangur að mötuneyti og afsláttur á verði máltíða, tækifæri til símenntunar með aðgangi að fjölbreyttum innri námskeiðum. Einnig býður Landspítali starfsfólki sínu uppá samgöngusamning.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 klst. á viku vegna styttri vinnuviku en markmiðið er að stuðla að betri heilsu starfsfólks þar sem vinnutíminn er nýttur betur og starfsfólk hefur með því aukna möguleika til að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og er æskilegt að umsækjandi geti hafið störf 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.























































