Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg

Sérkennslustjóri

Leikskólinn Álfaborg og leikskóladeild Bláskógaskóla auglýsa eftir sérkennslustjóra til starfa í 100% stöðu. Um er að ræða spennandi tækifæri til að vinna í báðum leikskólum Bláskógabyggðar þar sem starfið skiptist í 60% stöðu í leikskólanum Álfaborg og 40% á leikskóladeild Bláskógaskóla.

Sérkennslustjóri er faglegur umsjónarmaður sérkennslu. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun skólanna sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðist vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum.

Umsóknum fylgir yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Nánari upplýsingar veitir Lieselot Simoen leikskólastjóri í síma 480-3051.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólunum ásamt leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérfræðinga og starfsmanna.
  • Ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með gerð verkefna og einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu, í samvinnu við deildarstjóra og aðra sem sinna sérkennslu.
  • Yfirumsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu, gerð verkefna og gerð einstaklingsnámskráa.
  • Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsmenn.
  • Að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein.
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Hæfni og áhugi í starfi með börnum
  • Reynsla af sérkennslu
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Tímabundin viðbótarlaun
  • Yfirvinnugreiðslur (6 klst.) 
  • Ívilnun vegna aksturs 
  • Frítt fæði 
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar
  • Skapandi starfsumhverfi 
Utworzono ofertę pracy24. October 2025
Termin nadsyłania podań9. November 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Bláskógaskóli á Laugarvatni
Leikskólinn Álfaborg í Reykholti
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe