Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi

Sérfræðingur umhverfismála

Viltu taka þátt í að móta kolefnislausa framtíð með okkur?

Við leitum að áhugasömum einstaklingi til starfa á rannsóknastofu innan Þróunarsviðs Rio Tinto á Íslandi.

Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í lifandi umhverfi. Starfið veitir gott tækifæri til að kynnast umhverfismálum í stóru framleiðslufyrirtæki.

Rannsóknastofan gegnir lykilhlutverki í umhverfismálum Rio Tinto. Þar starfa sex manns sem sinna mælingum á sviði umhverfis- og vinnuumhverfismála, auk efnagreininga sem tengjast rekstri fyrirtækisins. Við leitum að traustum og ábyrgum einstaklingi til þess að verða hluti af okkar teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um skipulagningu og framkvæmd mælinga í umhverfismálum og vinnuumhverfi 
  • Tryggja áreiðanleika mælinga og gæði niðurstaðna 
  • Þátttaka í kolefnisbókhaldi fyrirtækisins (ETS) 
  • Úrvinnsla gagna og skýrslugerð 
  • Samskipti innan fyrirtækisins 
  • Fylgja eftir kolefnisáætlun fyrirtækisins 
  • Rýni á tækni til að fanga koltvísýring 
  • Ýmis önnur verkefni tengd umhverfismálum 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking á efnagreiningu og umhverfismálum 
  • Reynsla af rannsóknum, tækniþróun og umbótastarfi er kostur 
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð tölvukunnátta og hæfni í greiningarvinnu 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Góðir samskiptahæfileikar 
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði í mötuneyti
  • Heilsustyrkur
  • Fæðingarorlofsstyrkur allt að 18 vikur á óskertum launum
  • Velferðartorg
  • Þátttaka í hlutabréfakaupum
  • Öflugt þjálfunar- og fræðslustarf
Utworzono ofertę pracy5. June 2025
Termin nadsyłania podań22. June 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.BadaniaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Przetwarzanie danych badawczych
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia