Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Sérfræðingur í pökkunardeild Coripharma

Coripharma leitar að sérfræðingi í pökkunardeild á framleiðslusviði. Við óskum eftir öflugum aðila sem getur unnið sjálfstætt sem og í teymi og hefur þekkingu og reynslu á sviði gæðamála og GMP.

Sérfræðingurinn mun annast fjölbreytt verkefni og er í daglegum samskiptum við teymið í pökkun sem og aðrar deildir innan fyrirtækisins. Verkefni sérfræðings tengjast bæði undirbúningi og stuðningi við pökkun lyfja, bæði fyrir eigin lyfjaþróun og í framleiðslu fyrir þriðja aðila (contract manufacturing).


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur gagna fyrir lyfjapökkun
  • Uppsetning pökkunarmastera (Master Data)
  • Móttaka, skráning og greining frávika sem koma upp í pökkunarferlum
  • Vinnur að ferla-og umbótaverkefnum (CAPA, stöðugar umbætur)
  • Gerð skriflegra leiðbeininga og þjálfunarefnis fyrir pökkunardeild
  • Þátttaka í úttektum innri og ytri aðila
  • Þátttaka í þróunarverkefnum og undirbúningur m.a. fyrir prófanir á nýjum búnaði og pökkun á nýjum lyfjum, umbúðategundum og pakkningarstærðum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði raungreina
  • Þekking og reynsla á sviði gæðamála og GMP
  • Nákvæmni og góð skipulagshæfni
  • Góð greiningarhæfni
  • Samskiptahæfni, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
  • Góð íslensku og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta


Fríðindi

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Mötuneyti

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn. Í dag starfa um 230 einstaklingar hjá fyrirtækinu.

Frá því félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari Upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Utworzono ofertę pracy29. January 2026
Termin nadsyłania podań8. February 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.FarmaceutaPathCreated with Sketch.Technik farmaceutycznyPathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe