Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sérfræðingur í innri endurskoðun

Arion banki leitar að sérfræðingi í innri endurskoðun með áherslu á upplýsingatækni. Leitað er að skipulögðum og umbótadrifnum einstaklingi með metnað til að ná árangri í starfi og hæfni til að starfa vel í teymi. Innri endurskoðun starfar óháð öðrum deildum í skipulagi bankans og heyrir beint undir stjórn bankans. Í deildinni starfar öflugur hópur reynslumikilla sérfræðinga með það hlutverk að sjá um innri endurskoðun bankans, dótturfélaga og lífeyrissjóða í rekstri bankans.

Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi fær heildarsýn og innsýn í rekstur og kerfi. Starfsfólk fær tækifæri til þess að stuðla að umbótum, þannig hafa áhrif til góðs og vinna með fjölbreyttum hópi fólks innan bankans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að sjá heildarmyndina með því að greina og meta upplýsingakerfi, ferla og innra eftirlit.
  • Finna veikleika áður en þeir verða vandamál og tryggja fylgni við ytri kröfur.
  • Veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf með sérstaka áherslu á upplýsingatækni, upplýsingaöryggi og gögn.
  • Vinna náið með öðrum sérfræðingum innan deildarinnar og bankans
  • Nota gagnagreiningu og tækni til að gera endurskoðun snjallari og skilvirkari
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sérþekking á sviði endurskoðunar á upplýsingatækniumhverfum
  • CISA, CIA eða sambærileg gráða eru kostur
  • Sérþekking á sviði innri endurskoðunar er kostur
  • Þekking og/eða reynsla á starfsemi fjármálafyrirtækja og/eða upplýsingatækni er kostur
  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gagnrýnin hugsun auk drifkrafts og samskiptafærni
Utworzono ofertę pracy7. May 2026
Termin nadsyłania podań21. May 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe