Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Sérfræðingur í innri áhættulíkönum

Landsbankinn leitar að öflugum sérfræðingi í deildina Innri áhættulíkön innan Áhættustýringar bankans. Við leitum að liðsfélaga sem býr yfir mikilli þekkingu á hönnun og notkun líkana til að leysa krefjandi verkefni, hefur áhuga á að breyta gögnum í hagnýtar upplýsingar og hæfileika til að miðla niðurstöðum á auðskiljanlegan máta.

Verkefni deildarinnar snúa að þróun líkana sem meta útlánaáhættu bankans með áreiðanlegum hætti og stuðla þannig að upplýstri og gagnadrifinni ákvarðanatöku. Unnið er úr þeim gögnum sem nauðsynleg eru fyrir þróun líkana og gerðar eru gagnagreiningar tengdar útlánaáhættu fyrir önnur svið bankans sem og eftirlitsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og viðhald á tölfræðilíkönum til að meta útlánaáhættu
  • Gagnavinnsla fyrir þróun líkana
  • Stuðningur við þróun á öðrum líkönum tengdum útlánaáhættu og eiginfjárútreikningi
  • Gagnagreiningar, kynningar og samskipti við hagsmunaaðila innan bankans og utan vegna ofangreindra verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem stærðfræði/tölfræði, verkfræði og gagnavísindi. Framhaldsmenntun er kostur
  • Ítarleg þekking á aðferðum við smíði tölfræðilíkana
  • Reynsla af forritun í SAS, R, eða öðru sambærilegu forritunarmáli
  • Þekking á gagnavinnslu og SQL fyrirspurnarmálinu er kostur
  • Reynsla af áhættustýringu er kostur
Utworzono ofertę pracy28. May 2025
Termin nadsyłania podań10. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Reykjastræti 6
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia