Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sérfræðingur í fósturteymi

Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingi í fósturteymi stofunnar. Um er að ræða 100% starf. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Starfið heyrir undir teymisstjóra fósturteymis. Starfsstöð er í Borgartúni 29 í Reykjavík en starfið getur krafist þess að viðkomandi ferðist um landið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fræðsla og faglegur stuðningur við fósturforeldra
  • Úrvinnsla og gerð umsagna um mat á hæfni fósturforeldra
  • Halda skrá um fósturforeldra og fósturbörn
  • Afgreiðsla, mat og úrvinnsla umsókna frá barnaverndarþjónustum
  • Ráðgjöf, handleiðsla og leiðbeiningar í einstaka málum til barnaverndar, annarra fagaðila og fósturforeldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa um meistarapróf í félagsráðgjöf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og hæfni til að meta upplýsingar um umönnunar- og meðferðarþörf barna.  
  • Reynsla og þekking á starfi barnaverndar og fósturmálum kostur. 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, sveigjanleiki og þjónustulund. 
  • Mjög góð hæfni í textagerð.
  • Skipulagshæfni, nákvæm og öguð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og færni til að vinna í teymi.
  • Mjög góð íslenskukunnáttu og góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. 
Utworzono ofertę pracy22. May 2026
Termin nadsyłania podań5. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe