Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Sérfræðingur á sviði fjármála - Tækifæri til að móta framtíð framhaldsskóla

Það skiptir öllu fyrir íslenskt samfélag að fjárfesta í framtíðinni. Þess vegna verjum við 50 milljörðum á ári í öfluga framhaldsskóla. Þessu fylgir mikil ábyrgð!

Í mennta- og barnamálaráðuneytinu gefast einstök tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun íslensks menntakerfis. Við leitum nú að metnaðarfullum sérfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf á skrifstofu fjármála og innri þjónustu sem lýtur að fjármögnun og stefnumótun framhaldsskóla.

Viðkomandi þarf að búa yfir ótal kostum svo sem ómældri jákvæðni, ráðkænsku, greiningarhæfni, frumkvæði og skipulagsgáfu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi og vera tilbúin/n til að takast á við snúin verkefni við fjölbreyttar aðstæður.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðkoma að gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga, sem og eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga í samræmi við lög um opinber fjármál.

  • Tengiliður við framhaldsskóla út af fjármálum þeirra.

  • Vinna við þróun nýs reiknilíkans framhaldsskóla sem ákvarðar fjármagn til þeirra.

  • Samskipti við Fjársýslu ríkisins, fjármálaráðuneytið og önnur fagráðuneyti.

  • Öflun upplýsinga og vinna við svörun fyrirspurna frá Alþingi, Ríkisendurskoðun, fjölmiðlum o.fl.

  • Samskipti við aðila sem ráðuneytið er í samningssambandi við.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum.

  • Góð þekking á fjárhagsbókhaldi, t.d. Orra fjárhagsbókhaldi ríkisins.

  • Þekking og reynsla af rekstri og verkefnastjórnun er kostur.

  • Þekking á lögum um opinber fjármál og rekstri opinberra stofnana er kostur.

  • Styrkur til að veita ráðgjöf/leiðsögn til yfirmanna stofnana og samstarfsaðila. Mjög góð hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.

  • Mjög góð færni í vinnu með tölur og úrvinnslu gagna, þ.m.t. í Excel.

  • Reynsla af vinnslu gagna, s.s. í vöruhúsum og með framsetningu í PowerBI er kostur.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Utworzono ofertę pracy21. April 2026
Termin nadsyłania podań4. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Borgartún 33, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe