Brú Talent
Brú Talent

Sérfræðingur á fjármálasviði

Brú Talent leitar eftir árangursdrifnum og framsýnum sérfræðingi á fjármálasviði fyrir viðskiptavin sinn. Fyrirtækið er eitt það fremsta í þjónustugeiranum sem sérhæfir sig í fasteignaumsjón.

Viðkomandi mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði ferla, greininga,
fjármálastjórnunar og áætlana. Starfið felur í sér þátttöku í daglegum rekstri,
fjárhagsuppgjörum og skýrslugerð, auk þess að koma að þróun gagnaumhverfis og
umbótaverkefna. Lögð er áhersla á sterka greiningarfærni, gott skipulag og góða
samskiptafærni.

Hlutverk og ábyrgð

  • Þróun ferla með aðstoð sjálvirkni og kerfisbundinni nýtingu gagna.
  • Eftirfylgni með lykilmælikvörðum.
  • Greining frávika, rekstraryfirlita og lykiltalna auk þróunar
    á stjórnendamælaborðum.
  • Þátttaka í gerð mánaðar- og ársuppgjöra, afstemminga og áætlana.
  • Þátttaka í gerð rekstraráætlunar og þróunar afkomuspár (e. Rolling forecast).

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, fjármálum, verkfræði eða skyldum greinum.
  • Góð færni í Excel; einnig er kostur að hafa þekkingu á því að ná í gögn og birta
    þau til að mynda með PowerBI eða annarri gagnagreiningartækni.
  • Reynsla og þekking á Business Central og/eða öðrum fjárhagskerfum er mikill
    kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og vilji til að leita umbóta í ferlum og nýtingu gagna.
  • Framúrskarandi greiningarhæfni, nákvæm & skipulögð vinnubrögð og geta til að
    setja flókna hluti fram á einfaldan hátt.

Fyrirtækið sem um ræðir er framsækið en rótgróið. Sérhæfing þeirra byggir á áratuga reynslu og frábæru starfsfólki sem hefur einsett sér að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum. Starfsumhverfið er fjölbreytt og virk þátttaka & helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni félagsins. Árangur þeirra er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur.

Umsóknir óskast ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Utworzono ofertę pracy31. March 2026
Termin nadsyłania podań12. April 2026
Znajomość języków
Brak wymagań językowych
Lokalizacja
Reykjavík, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe