Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á athvarfið Læk

Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem sérfræðing á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
  • Leitast við að auka lífsgæði og stuðla að valdeflingu
  • Móttaka gesta Lækjar
  • Aðstoð í eldhúsi
  • Heilsuefling, útivist og sköpun
  • Heilsuefling gesta
  • Sjá um að móta og skapa ný námskeið
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi s.s. sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf tómstunda- og þroskaþjálfafræði.
  • Reynsla af störfum og samskiptum með geðfötluðum æskileg
  • Áhugi á málaflokknum
  • Frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
  • Hugmyndaauðgi
  • Geta til að vinna undir álagi og að bregðast við breyttum aðstæðum
  • Íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy3. June 2025
Termin nadsyłania podań19. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia