

Sálfræðingur í geðheilsuteymi - starf án staðsetningar
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi stofnunarinnar.
Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og að sinna stuðningi, ráðgjöf og faglegri handleiðslu fyrir starfsfólk auk aðkomu að fræðslu og öðrum verkefnum.
Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu.
Ef þú vilt vinna í öflugu teymi sem leggur áherslu á samvinnu, fagmennsku og metnað í starfi, er þetta einstakt tækifæri.
-
Þjónusta við skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og/eða á staðnum.
-
Samstarf við aðrar fagstéttir heilsugæslunnar og geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
-
Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.
-
Þátttaka í frekari innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
-
Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis.
-
Handleiðsla í boði
-
Klínískt nám í sálfræði og starfsleyfi frá Embætti landlæknis
-
Þekking og reynsla á gagnreyndum aðferðum
-
Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
-
Framúrskarandi samskiptahæfni
-
Jákvæðni og frumkvæði í starfi
-
Áhugi, geta og faglegur metnaður til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
-
Góð almenn tölvukunnáttu
-
Íslenskukunnátta er skilyrði


