
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Rými fyrir hárgreiðslustofu Furugerði 1
Norðurmiðstöð auglýsir laust til leigu húsnæði fyrir hárgreiðslustofu í Þjónustuíbúðunum Furugerði 1. Húsnæðið býður upp á góða vinnuaðstöðu í notalegu umhverfi og húsaleigu á sanngjörnu verði. Stofan er opin öllum, jafnt íbúum sem öðrum borgarbúum og opnunartími eftir samkomulagi/sveigjanlegur. Húsnæðið gefur möguleika á fjölbreyttu starfi með skemmtilegu fólki og hvetjum við alla áhugasama til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 4. júlí n.k. Nánari upplýsingar veitir Kristinn J. Reimarsson í síma 411-1500, netfang [email protected] Umsóknum skal skilað á Norðurmiðstöð, Efstaleiti 1, 103 Reykjavík, eða á ofangreint netfang.
Utworzono ofertę pracy12. June 2025
Termin nadsyłania podań4. July 2025
Znajomość języków

Wymagane
Lokalizacja
Furugerði 1, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (5)

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir hárgreiðslustofu Norðurbrún 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Barnavernd Reykjavíkur - Eftirlit
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri á íbúðarkjarna við Skúlagötu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Podobne oferty pracy (1)