Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Reynslumiklir þjónar óskast á Ylju – Laugarás Lagoon

Við leitum að reynslumiklum, ábyrgum og jákvæðum þjónum til að slást í hópinn á einstökum áfangastað í Laugarási, þar sem náttúra, vellíðan og dýrmæt upplifun mætast á einum stað.

Ylja er hlýlegur og hráefnisdrifinn veitingastaður sem leggur áherslu á hreinan mat og hráefni úr nærumhverfi, undir stjórn Gísla Matt.

Sem þjónn hjá okkur ertu lykilþáttur í upplifun gesta og með fagmennsku, nærveru og jákvæðu viðmóti tryggir þú að hver heimsókn verði eftirminnileg frá upphafi til enda.

Leitað er að einstaklingum með reynslu af þjónustu og áhuga á að starfa í lifandi og faglegu umhverfi.

Unnið er á vöktum samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi

Við leitum að starfsfólki í:

• Fullt starf

• Sumarstarf með möguleika á framlengingu

Helstu verkefni og ábyrgð
    • Veita persónulega og faglega þjónustu
    • Leiða gesti í gegnum mat og drykk með öryggi og þekkingu 

    • Vinna í nánu samstarfi við eldhús og bar til að tryggja góða þjónustu 

    • Sýna góða samskiptahæfni og vinna vel með öðru starfsfólki 

    • Viðhalda snyrtilegu og öruggu vinnuumhverfi 

    • Bregðast hratt við og tryggja að upplifun gesta sé jákvæð og eftirminnileg.

    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Hefur reynslu af þjónustu á veitingastöðum
    • Framúrskarandi þjónustulund, hlýleg og fagleg framkoma og kemur vel fyrir
    • Er jákvæð/ur, snyrtileg/ur og áreiðanleg/ur í starfi 
    • Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál eru kostur)
    • Getur unnið vel í lifandi, hröðu og síbreytilegu umhverfi
    • Hafa náð 20 ára aldri
    Fríðindi í starfi
    • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
    • Tækifæri til starfsþróunar
    • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
    • Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
    • Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
    • Aðgangur að starfsmannahúsnæði er í boði.
    Utworzono ofertę pracy23. April 2026
    Termin nadsyłania podańŻaden
    Znajomość języków
    AngielskiAngielski
    Wymagane
    Doskonale
    islandzkiislandzki
    Wymagane
    Doskonale
    Lokalizacja
    Skálholtsvegi 1, Laugarási
    Rodzaj pracy
    Kompetencje
    PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
    Zawody
    Tagi zawodowe