Teknís ehf.
Teknís ehf.
Teknís ehf.

Reyndur málmiðnaðarmaður - Experienced welder

Teknís ehf. óskar eftir að ráða reyndan málmiðnaðarmann til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins, ýmist við nýsmíði eða viðhald. Við leitum að einstaklingi sem hefur gott verkvit, er sjálfstæður í vinnubrögðum og hefur reynslu af suðuvinnu. Iðnréttindi eru mikill kostur en áralöng reynsla í málmsmíði er ekki síðri. Verkefni fyrirtækisins eru margvísleg en helst erum við þekkt fyrir olíutanka- og lagnasmíði sem eru okkar stærstu verkefni.

Teknís ehf. is hiring experienced welders.

Vinnutími er frá 7:30 til 17:00 en á föstudögum 7:30 til 14:00. Verkefnum getur fylgt tilfallandi aukavinna.

Teknís ehf. er gamalgróið fyrirtæki sem byggir á hálfrar aldar gömlum og traustum grunni. Mikil fjölhæfni einkennir starfsemi Teknís og spanna verkefnin allt frá olíubirgðageymum og brúarmannvirkjum til hins listræna en Teknís var valið úr hópi innlendra og erlendra aðila til að framleiða og setja upp listaverk eftir Leif Breiðfjörð í Dómkirkjuna í Edinborg.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Nýsmíði og viðhaldsvinna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða góð reynsla í faginu er skilyrði
  • Reglusemi og stundvísi
  • Íslensku- eða góð enskukunnátta skilyrði
  • Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Lyftarapróf og/eða meirapróf er kostur
Utworzono ofertę pracy9. May 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
islandzkiislandzki
Opcjonalnie
Podstawowe umiejętności
Lokalizacja
Einhella 8, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.BudownictwoPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Skrupulatność
Zawody
Tagi zawodowe