Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Rafvirki farangurskerfis

Viltu gegna lykilhlutverki í því að tryggja öruggan og hnökralausan rekstur stærsta flugvallar landsins? Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustuliprum rafvirkja til að starfa við farangurskerfið á Keflavíkurflugvelli.

Í þessu starfi færð þú tækifæri til að sinna mikilvægum þáttum í rekstri flugstöðvarinnar með fókus á öryggi, áreiðanleika og tæknilega færni.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia. Þar að auki bjóðum við upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að velferðarþjónustu og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Helstu verkefni:

  • Viðhald farangurskerfis og gegnumlýsingavéla samkvæmt viðhaldsáætlun
  • Reglulegt eftirlit með farangurskerfi og gegnumlýsingabúnaði
  • Bilanagreining og þátttaka í úrlausn bilana
  • Þrif og umhirða á búnaði
  • Skráning viðhaldssögu og tilkynningar um notkun varahluta
  • Stuðningur við uppsetningu og innleiðingu eigna
  • Þátttaka í viðhaldi annarra eigna eftir þörfum
  • Samskipti við afgreiðsluaðila og samstarfsaðila
  • Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við rekstur og öryggi búnaðar

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærileg menntun/reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af iðnstýringum
  • Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Vilji til að taka þátt í bakvöktum þegar reynsla hefur byggst upp

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Umsóknarfrestur er til og með 19.apríl 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Skúli Pálsson, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Utworzono ofertę pracy9. April 2026
Termin nadsyłania podań19. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.ElektrykaPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe