Loftvist
Loftvist

Óska eftir iðnaðarmanni í 50% starf

Um er að ræða 50% starf með möguleika á yfirvinnu. Starfið felst aðallega í uppsetningu á loftræstitækjum, loftskiptatækjum og öðrum minni lausnum fyrir heimili og fyrirtæki, ásamt almennri uppsetningarvinnu og frágangi.

Við leitum að menntuðum og handlögnum iðnaðarmanni með góða verklega reynslu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera lausnamiðaður og hafa grunnþekkingu á rafmagni og raftengingum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Uppsetning loftræstitækja og minni loftræstilausna, almenn uppsetningar- og iðnaðarvinna, rafmagnstengingar, frágangur og önnur tilfallandi verkefni tengd uppsetningum og þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur

Iðnmenntun og góð reynsla af verklegum störfum og uppsetningum. Viðkomandi þarf að vera handlaginn, sjálfstæður og vandvirkur í vinnubrögðum ásamt því að hafa grunnþekkingu á rafmagni og raftengingum. Ökuréttindi eru skilyrði.

Fríðindi í starfi

Bensínkort og sveigjanlegur vinnutími. Starfið býður upp á gott svigrúm til að skipuleggja vinnutímann eftir samkomulagi.

Utworzono ofertę pracy15. September 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe