
Neyðarverðir
Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til að annast svörun fyrir neyðarnúmerið 112 ásamt netspjalli, greina erindi, leiðbeina og virkja viðeigandi viðbragðsaðila. Boðið er upp á krefjandi, ábyrgðarmikið en jafnframt gefandi framtíðarstarf í traustu vinnu umhverfi.
Óskað er eftir starfskrafti í 100% starf á öllum tímum sólarhringsins. Unnið er á vöktum í sveigjanlegu vaktakerfi og í upphafi starfs fá neyðarverðir markvissa þjálfun í starfi.
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Fimm ára farsæl reynsla af almennum vinnumarkaði
- Góð almenn tölvukunnátta og innsláttarhraði
- Framúrskarandi tök á íslensku og ensku, kunnátta í öðrum tungumálum mikill kostur
- Almenn þekking á landinu
- Hreint sakavottorð
- Geta til að taka stjórn í erfiðum aðstæðum og halda skýrri hugsun undir álagi
- Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
- Góð greiningarhæfni
- Ríkir samstarfshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund, samviskusemi og sveigjanleiki
- Aðlögunarhæfni
Hjá Neyðarlínunni starfar hópur af frábæru fólki með fjölbreyttan bakgrunn, þekkingu og reynslu sem er grunnurinn að starfsemi Neyðarlínunnar. Talsverð þróun hefur orðið á starfsemi 112, m.a. með opnun ofbeldisgáttar og netspjalls. Á komandi misserum heldur þróun næstu kynslóðar neyðarsvörunar áfram vegna stöðugra framfara á sviði neyðarþjónustu.
Neyðarlínan sér um neyðar- og öryggisþjónustu á Íslandi og starfrækir til þess neyðarsvörun 112 og Tetra fjarskiptakerfið auk þátttöku í rekstri Vaktstöðvar siglinga og fleiri verkefnum. Neyðarlínan vinnur í nánu samstarfi við lögreglu ásamt því að boða björgunar- og neyðarsveitir á öllu landinu og er tengiliður milli almennings og viðbragðsaðila.
Gildi Neyðarlínunnar eru fagmennska, hjálpsemi, viðbragðsflýti sem endurspeglar vel þá menningu og verklag sem tíðkast hjá Neyðarlínunni. Markmið Neyðarlínunnar er að vera traustur vinnustaður fyrir hæft starfsfólk þar sem þjónustuvilji og hröð og skjót viðbrögð fara saman. Neyðarlínan leggur mikla áherslu á faglega þekkingu starfsmanna og fjárfestir í fræðslu og þjálfun með skýr markmið í huga.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
islandzki
Angielski










