
HH hús
HH Hús er byggingarfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, stofnað árið 2003. Markmið fyrirtækisins er að veita framúrskarandi þjónustu, fagleg vinnubrögð og veita góða upplýsingagjöf. Frá stofnun hefur HH Hús sérhæft sig í fjölbreyttum verkefnum, bæði nýbyggingum og fjölbreyttum viðhaldsverkefnum. HH Hús er alverktaki með smiði, pípara og múrara ásamt því að vera með samninga við undirverktaka eins og t.d. rafvirkja.
Múrari - framtíðarstarf
HH Hús leitar að duglegum múrara í fullt starf. Til greina kemur líka að ráða nema með framtíðarráðningu í huga.
Við sérhæfum okkur í viðhaldi, endurbótum og fjölbreyttum verkefnum bæði utan- og innanhúss. Við leggjum áherslu á metnað í því sem við gerum og reynum að viðhalda góðum starfsanda og jákvæðu vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn múrvinna s.s. flotun, steypur og flísalögn
- Fjölbreytt verkefni tengd tjónum og viðhaldi
- Samskipti við viðskiptavini
- Skila af sér snyrtilegu verki
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kostur að vera með sveinspróf eða önnur réttindi
- Góð þjónustulund og ánægja af að veita góða þjónustu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Vandvirkni og hæfni til að vinna vel með öðrum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
-
Samkeppnishæf laun
-
Fjölbreytt og sjálfstætt starf
-
Gott og hvetjandi starfsumhverfi
-
Öflugt teymi og jákvæður starfsandi
Utworzono ofertę pracy10. April 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiOpcjonalnie
AngielskiOpcjonalnie
Lokalizacja
Stangarhylur 5, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Murarstwo
Zawody
Tagi zawodowe


