Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Móttökuritari á Patreksfirði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að þjónustuliprum, jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til starfa í móttökunni á Patreksfirði. Um er að ræða 50% starf eða eftir nánara samkomulagi. Það stendur til að boða að hækka starfshlutfall með öðrum verkefnum á stofnuninni.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 280 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni móttökuritara eru móttaka viðskiptavina, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, skráning í sjúkraskráningarkerfið Saga, móttaka greiðslu, uppgjör í lok dags, almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnanda.

Móttaka og símsvörun er opin á milli 8:00 til 15:00 en stofnunin hefur innleitt betri vinnutíma með fullri vinnutímastyttingu.

Megin starfsstöð er á Patreksfirði en móttökuritarar veita þjónustu fyrir alla stofnunina í gegnum síma, fjartækni, tölvupóst, vef- og samfélagsmiðla.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma

  • Stúdentspróf og/eða menntun í heilbrigðisgreinum kostur

  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð íslensku og enskukunnátta áskilin

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Reynsla af móttöku- eða þjónustustörfum æskileg

Utworzono ofertę pracy11. March 2026
Termin nadsyłania podań31. March 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Stekkar 1, 450 Patreksfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe