Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Miðjan auglýsir eftir starfsfólki í félagslega heimaþjónustu

Miðjan, miðstöð stoð og stuðingsþjónustu á Velferðarsviði Kópavogsbæjar óskar eftir starfsfólki í heimaþjónustu á dagvinnutíma virka daga.

Heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða notendur sem geta ekki séð um heimilishald án utanaðkomandi aðstoðar. Þjónustan felur í sér aðstoð við heimilishald. Aðallega er um að ræða heimilisþrif, aðstoð við innkaup sem og félagslegan stuðning og hvatningu..

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita aðstoð við þrif og annað heimilishald
  • Veita félagslegan stuðning til þeirra sem á þurfa að halda, svo sem í formi samveru, búðarferða, gönguferða og stuðnings við að sækja félagsstarf
  • Samvinna við þjónustuþega og aðra starfsmenn

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Stundvísi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reglusemi, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
  • Gott vald á íslensku er skilyrði.
  • Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri.
  • Æskilegt að hafa bíl til umráða.

Um er að ræða fullt starf á dagvinnutíma, tímabundið eða eftir samkomulagi.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningar.

Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á velferðarsvið Kópavogsbæjar þurfa að gefa heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá og undirrita trúnaðaryfirlýsingu.

Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2025

Nánari upplýsingar um starfið veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 441-0000 og á netfangi [email protected].

Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs

Menntunar- og hæfniskröfur
  • íslenskukunnátta
  • Skipulagshæfni
  • Stundvísi
Utworzono ofertę pracy24. June 2025
Termin nadsyłania podań30. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia