Dalur
Dalur
Dalur

Matráður óskast í Dal

Leikskólinn Dalur óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi matráð í 80 % starf. Starfið felur í sér ábyrgð á eldhúsi leikskólans og mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að skapa bragðgóðan og næringarríkan mat.

Leikskólinn Dalur hóf starfsemi sína 11. maí 1998. Dalur er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1 - 5 ára.

Leikskólinn Dalur leggur megináherslu á gæði í samskiptum til að tryggja öryggi og vellíðan barna í leikskólanum. Samskipti er grundvallarþáttur í öllu starfi leikskólans. Einkunnarorð leikskólans eru Virðing – ábyrgð – sjálfstæði.

Það eru spennandi tímar framundan í leikskólum Kópavogs þar sem starfsumhverfi kennara og barna er í forgrunni eins og til dæmis full vinnustytting og er hluti af henni nýtt í vetrar-, páska- og jólafrí. Sjá nánar hér

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Heimasíða leikskólans er http:dalur.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framleiðir holla og næringarríka fæðu fyrir börnin.
  • Framleiðir mat fyrir börn með fæðuofnæmi/óþol.
  • Vinnur samkvæmt því skipulagi sem leikskólastjóri ákveður.
  • Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs.
  • Mikilvægt er að eiga gott samstarf við börn og annað starfsfólk leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús, þvottahús sem og kaffistofu sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í matvælafræði.
  • Þekking á framreiðslu og bakstri.
  • Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum.
  • Hreinlæti og snyrtimennska.
  • Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla.
  • Þekking á matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol.
  • Stundvísi, sveigjanleiki og jákvæðni.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Gott vald á íslensku er skilyrði.
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań12. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Funalind 4, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe