Bragðlaukar
Bragðlaukar
Bragðlaukar

Markaðsfulltrúi

Bragðlaukar leita að drífandi og skipulögðum markaðs- og sölufulltrúa sem vill taka virkan þátt í áframhaldandi vexti félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið lykilhlutverk þar sem viðkomandi vinnur náið með eigendum fyrirtækisins og kemur beint að markaðssetningu, sölu, þjónustu við viðskiptavini og daglegum rekstri.

Bragðlaukar eru rótgróið veitinga- og þjónustufyrirtæki sem reka veitingastað í Urðahvarfi auk þess að bjóða upp á veislu- og fyrirtækjaþjónustu. Félagið er þekkt fyrir vandaðan mat, faglega framkvæmd og persónuleg samskipti þar sem lögð er áhersla á áreiðanleika og lausnamiðaða þjónustu frá fyrstu fyrirspurn til lokaafhendingar.

Bragðlaukar eru í vexti og leita að öflugum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í að þróa markaðs- og sölustarfsemi félagsins í nánu samstarfi við eigendur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Markaðs- og kynningarmál félagsins, bæði stafrænt og hefðbundið
  • Sala á veislu- og fyrirtækjaþjónustu
  • Samskipti við viðskiptavini frá fyrirspurn til afhendingar
  • Umsjón með reikningagerð, tilboðum og eftirfylgni
  • Samskipti við birgja og samstarfsaðila
  • Uppfærsla á vef, samfélagsmiðlum og kynningarefni
  • Greining á sölutækifærum og þátttaka í mótun vaxtaráætlana
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og brennandi áhugi á markaðs- og sölustörfum
  • Hæfni í að útbúa efni fyrir samfélagsmiðla og skapandi hugsun
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
  • Almenn tölvufærni og reynsla af reikningagerð er kostur
  • Mjög góð færni í íslensku, góð færni í ensku
Fríðindi í starfi
  • Lykilhlutverk í vaxandi og metnaðarfullu fyrirtæki
  • Nána samvinna við eigendur og raunveruleg áhrif á þróun og vöxt
  • Fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi
  • Sveigjanleika og tækifæri til að móta starfið
  • Góðan starfsanda og skýra ábyrgð
Utworzono ofertę pracy15. June 2026
Termin nadsyłania podań30. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Urðarhvarf 4, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkie
Zawody
Tagi zawodowe