Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili

Mannauðsráðgjafi í afleysingar

Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili eru að leita að mannauðsráðgjafa í afleysingu vegna fæðingarorlofs

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna afleysingastarfi í mannauðsteymi okkar vegna fæðingarorlofs í rúmt ár. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í kraftmiklu umhverfi þar sem rík áhersla er lögð á fagmennsku, teymisvinnu og jákvæða starfsmenningu.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðssviðs og því fylgir mikil samvinna við launadeild og stjórnendur. Um er að ræða fullt starf sem er laust við fyrsta tækifæri eða eftir samkomulagi.
Hjúkrunarheimilin okkar eru óhagnaðardrifnar sjálfseignarstofnanir og er fjöldi starfsfólks um 700 með fjölbreyttan bakgrunn. Okkar markmið er að veita persónulega þjónustu á faglegan og ábyrgan hátt. Íbúar og skjólstæðingar eru í forgrunni með virðingu, vellíðan og virkni að leiðarljósi í öllu okkar starfi.
Starfið er tilvalið fyrir þá sem búa í efri byggðum og eru þreyttir á morgunumferðinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk
  • Aðstoð við ráðningar og móttaka nýliða
  • Fræðsla, þróun og þjálfun stjórnenda og starfsfólks
  • Verkefni tengd vinnuvernd, heilsu og öryggi starfsfólks
  • Þátttaka í mótun stefna, ferla og verklags í mannauðsmálum
  • Þátttaka í umbótaverkefnum
  • Ýmis önnur skemmtileg verkefni á sviði mannauðsmála
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í mannauðsstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði, metnaður og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af mannauðsmálum er æskileg
  • Góð excel- og tölvufærni
  • Áhugi á alhliða mannauðs og vinnuverndarmálum
  • Reynsla af umbótum
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Utworzono ofertę pracy25. April 2026
Termin nadsyłania podań7. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe