Lyfjaval
Lyfjaval
Lyfjaval

Lyfjafræðingur á höfuðborgarsvæðinu

Lyfjaval leitar að metnaðarfullum lyfjafræðingi í fullt starf

Fjölbreytt vakta fyrirkomulag í boði

Lyfjaval er hluti af nýstofnuðu félagi Dranga, sem er móðurfélag Orkunnar og Löðurs, Samkaupa ásamt Lyfjavali. Umrædd félög eru með djúpar rætur í þjónustu til viðskiptavina í dagvöru, heilsu, orku og þvotti fyrir bílinn um allt land. Lyfjaval rekur 7 apótek og þar af 5 bílalúguapótek þar sem áherslan er að veita framúrskarandi þjónustu.

Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf og aðrar heilsutengdar vörur, þar sem traust, fagmennska og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.

Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánanir upplýsingar veitir María Björk rekstrarstjóri [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ráðgjöf til viðskiptavina 
  • Afgreiðsla lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu
  • Samskipti við lækna og heilbrigðisstofnanir
  • Þátttaka í innra gæðaeftirliti og umbótarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í lyfjafræði
  • Gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna í hóp
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að taka þátt í að efla starfsemi Lyfjavals
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkjör hjá Lyfjaval og tengdum félögum Dranga sem eru Nettó, Orkan, Löður, Kjörbúðin og Krambúðin 
Utworzono ofertę pracy24. February 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Höfuðborgarsvæðið
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe