

Lundarskóli: Grunnskólakennari á unglingastigi
Við Lundarskóla á Akureyri eru lausar til umsóknar allt að tvær ótímabundnar stöður grunnskólakennara á unglingastigi, hvor um sig í 100% starfshlutfalli. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa sýnt árangur í störfum sínum. Áhersla er lögð á að þeir vinni að vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Megináhersla starfsins er á umsjónarkennslu á unglingastigi og/eða kennslu í fjölbreyttum námsgreinum, hvort sem um er að ræða bóknáms- og/eða sérgreinar.
Í Lundarskóla er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is
- Sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með hóp nemenda í árgangi og kemur að öllum þeirra málefnum innan skólans.
- Sinnir námsaðlögun og kennslu nemenda í samstarfi við námsaðlögunarteymi skólans. Á jafnframt gott samstarf við aðra starfsmenn skólans.
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda eftir því sem við á.
- Tekur þátt í foreldrasamstarfi.
- Tekur almennt þátt í þróunarstarfi skólans.
- Fylgir stefnu skólans í starfi.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Hefur á valdi sínu hæfni til að kenna fjölbreyttar námsgreinar á unglingastigi.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu.
- Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
- Þekking og reynsla af leiðsagnarnámi.
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
islandzki










