Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Lögfræðingur í loftslagsmálum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að reyndum lögfræðingi með áhuga á loftslagsmálum og stefnumótun til starfa í efstu stjórnsýslu landsins.

Við bjóðum krefjandi og áhrifamikið starf þar sem reynsla og þekking nýtist beint við mótun lagaumhverfis, stefnu og aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum.

Hlutverk ráðuneytisins er að framfylgja loftslagsstefnu stjórnvalda og stuðla að því að Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Í starfinu felst meðal annars:

  • Þróun og útfærsla löggjafar á sviði loftslagsmála
  • Undirbúningur og eftirfylgni aðgerðaáætlunar stjórnvalda
  • Vinna að málum er varða aðlögun samfélagsins að loftslagsbreytingum
  • Fagleg ráðgjöf innan ráðuneytisins og til annarra stjórnvalda
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi og samningaviðræðum
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða undirbúning og gerð frumvarpa og reglugerða
  • Úrvinnsla flókinna stjórnsýslumála, úrskurða og álita
  • Stefnumótun og eftirfylgni í loftslagsmálum í samstarfi við ráðuneyti, stofnanir og hagaðila
  • Ráðgjöf til stjórnvalda, stofnana og almennings
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi og framlagi Íslands á vettvangi EES og alþjóðastofnana
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði
  • Reynsla af lögfræðistörfum, helst í opinberri stjórnsýslu eða á sviði umhverfis- og loftslagsmála
  • Þekking á EES-samningnum og/eða alþjóðlegum skuldbindingum Íslands er æskileg
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Frumkvæði, fagleg sjálfstæði og hæfni til að taka afdráttarlausar ákvarðanir
  • Skipulögð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni
  • Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Stafræn færni og hæfni til að nýta nútímatækni við úrlausn verkefna
Utworzono ofertę pracy30. August 2025
Termin nadsyłania podań10. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe